Hoppa yfir valmynd
Úrskurðarnefnd velferðarmála - Atvinnuleysistryggingar og vinnumarkaðsaðgerðir

Mál nr. 190/2022-Úrskurður

Úrskurðarnefnd velferðarmála

Mál nr. 190/2022

Fimmtudaginn 7. júlí 2022

A

gegn

Vinnumálastofnun

Ú R S K U R Ð U R

Mál þetta úrskurða Hólmfríður Birna Guðmundsdóttir lögfræðingur, Agnar Bragi Bragason lögfræðingur og Arnar Kristinsson lögfræðingur.

Með kæru, dags. 6. apríl 2022, kærði A, til úrskurðarnefndar velferðarmála ákvörðun Vinnumálastofnunar, dags. 5. janúar 2022, um að stöðva greiðslur atvinnuleysisbóta til hennar og að innheimta ofgreiddar bætur.

I.  Málsatvik og málsmeðferð

Kærandi sótti um atvinnuleysisbætur hjá Vinnumálastofnun 10. febrúar 2021 og var umsóknin samþykkt með 85% bótarétti. Þann 9. september 2021 skilaði kærandi inn skólavottorði vegna 10 ECTS-eininga náms við Háskóla Íslands og gerði námssamning við Vinnumálastofnun. Við samkeyrslu Vinnumálastofnunar við nemendaskrá kom í ljós að kærandi var skráð í 15 ECTS-eininga nám við Háskóla Íslands og 60 ECTS-eininga nám við Landbúnaðarháskóla Íslands á haustönn 2021. Með erindi Vinnumálastofnunar, dags. 23. nóvember 2021, var óskað eftir upplýsingum frá kæranda vegna náms samhliða því að þiggja greiðslu atvinnuleysisbóta. Skýringar bárust ekki frá kæranda. Með bréfi Vinnumálastofnunar, dags. 6. desember 2021, var óskað eftir að kærandi legði fram skólavottorð og skýringar á því hvers vegna hún hefði ekki upplýst stofnunina um nám sitt. Skýringar bárust frá kæranda þann 28. desember 2021. Með ákvörðun Vinnumálastofnunar, dags. 5. janúar 2022, var kæranda tilkynnt að greiðslur atvinnuleysisbóta til hennar hefðu verið stöðvaðar með vísan til 52. gr. laga nr. 54/2006 og að henni bæri að endurgreiða ofgreiddar atvinnuleysisbætur fyrir tímabilið 1. september til 31. desember 2021 að fjárhæð 583.446 kr., að meðtöldu álagi.

Kæra barst úrskurðarnefnd velferðarmála 6. apríl 2022. Með bréfi, dags. 7. apríl 2022, óskaði úrskurðarnefndin eftir greinargerð Vinnumálastofnunar ásamt gögnum málsins. Greinargerð Vinnumálastofnunar barst með bréfi, dags. 19. maí 2022, og var hún kynnt kæranda með bréfi úrskurðarnefndar, dags. 23. maí 2022. Athugasemdir bárust ekki.

II.  Sjónarmið kæranda

Kærandi greinir frá því að í kjölfar ákvörðunar Vinnumálastofnunar frá 5. janúar 2022 hafi greiðslur atvinnuleysisbóta til kæranda verið stöðvaðar. Kærandi óski eftir að krafa um endurgreiðslu ofgreiddra bóta að upphæð 583.446 kr., auk álags, fyrir tímabilið 1. september til 31. desember 2021 verði felld niður. Þá geri kærandi kröfu um að fá greiddar gjaldfallnar greiðslur að fjárhæð 580.816 kr., auk álags, fyrir að hafa verið skilin eftir án lífsviðurværis í nokkra mánuði. Að lokum geri kærandi kröfu um að mánaðarlegar greiðslur bóta til hennar verði ekki stöðvaðar.

Ástæða fyrir kröfum kæranda sé sú að ákvörðun Vinnumálastofnunar hafi verið tekin á grundvelli rangra upplýsinga. Haustið 2021 hafi kærandi byrjað í námi í B við Háskóla Íslands. Ætlun kæranda hafi verið að skrá sig í einn 10 ECTS-eininga áfanga sem hefði ekki áhrif á fjárhæð atvinnuleysisbóta til hennar. Hún hafi verið að fá 165.896 kr. í bætur eftir að hafa tilkynnt Vinnumálastofnun um hlutastarf sitt. Kærandi hafi síðan ákveðið að bæta við sig fimm ECTS-einingum til þess að vera enn undir 20 eininga viðmiðinu og geta því áfram átt rétt á óskertum bótum. Greiðslur til kæranda hafi í kjölfarið lækkað niður í 145.204 kr. sökum þess að kærandi hafi farið yfir 12 eininga viðmiðið. Hún hafi fengið lækkaða greiðslu í nóvember 2021 en í desember 2021 hafi greiðslum til hennar verið hætt. Hún hafi þá fengið greiddar 54.726 kr. sem hún geri ráð fyrir að hafi verið jólabónus.

Það sé rétt að á sama tíma hafi kærandi skráð sig í nám við Landbúnaðarháskóla Íslands á haustönn 2021. Það sé hins vegar ekki rétt að hún hafi stundað 26 ECTS-eininga nám líkt og komi fram á „Mínum síðum“ jafnvel þó það kunni að hafa komið fram í gögnum skólans. Málið sé að hana hafi langað til að prófa nám í Landbúnaðarháskólanum. Hún hafi ætlað að velja áfanga og skrá sig í tvær, fjórar eða fimm ECTS-einingar til þess að vera enn undir 20 ECTS-einingum. Hún hafi ekki ætlað sér að vera í fullu námi þar sem hún þurfi á atvinnuleysisbótum að halda, auk þess sem hún hafi vitað að hún myndi ekki geta klárað fullt nám samhliða hlutastarfi og námi í Háskóla Íslands. Hún hafi verið að skrá sig í skólann í fyrsta skipti og hafi því ekki vitað hvernig hlutirnir virkuðu. Skólinn sé töluvert frábrugðinn Háskóla Íslands og hún hafi ekki átt vini í skólanum sem hún hefði getað spurst fyrir um hjá. Hún hafi ekki vitað hvenær frestur til að skrá sig úr áföngum rynni út og hafi ekki fundið neinar upplýsingar um slíkt. Þá hafi hún ekki fengið svör við tölvupóstum sem hún hafi sent á kennara og skrifstofu skólans. Tíminn hafi liðið á meðan hún hafi, án árangurs, reynt að ná sambandi við skólann. Að lokum hafi það verið of seint að skrá sig úr áföngum í skólanum og því bendi gögn Vinnumálastofnunar til þess að hún hafi verið skráð í 26 ECTS-einingar.

Kæranda hafi ekki tekist að ljúka við neinar einingar sökum þessarar óreiðu, enda hafi hún haft nóg að gera fyrir utan námið. Meðfylgjandi kæru sé staðfesting á því að hún hafi ekki lokið neinum áföngum í Landbúnaðarháskóla Íslands sem sönnun fyrir því að hún hafi ekki verið að mæta, þrátt fyrir að kerfið hafi sýnt að hún væri skráð í nokkra áfanga. Af sömu gögnum sé ljóst að kærandi hafi verið skráð í 16 ECTS-einingar en ekki 26 ECTS-einingar líkt og gert hafi verið ráð fyrir. Þetta sýni enn fremur óskipulagið sem hafi átt sér stað. Að framangreindu virtu óski kærandi eftir því að bætur að fjárhæð 580.816 kr., auk 15% álags, verði greiddar á bankareikning hennar.

III.  Sjónarmið Vinnumálastofnunar

Í greinargerð Vinnumálastofnunar kemur fram að kærandi hafi sótt um greiðslu atvinnuleysistrygginga hjá Vinnumálastofnun með umsókn, dags. 10. febrúar 2021. Með erindi, dags. 23. mars 2021, hafi kæranda verið tilkynnt að umsókn hennar hefði verið samþykkt og að útreiknaður bótaréttur væri 85%. Þann 9. september 2021 hafi kærandi skilað inn skólavottorði, dags. 8. september 2021, vegna 10 ECTS-eininga náms í B við Háskóla Íslands ásamt því að hafa gert námssamning við stofnunina. Þá hafi kærandi tilkynnt um 15% hlutastarf þann 10. september 2021.

Við reglubundið eftirlit í nóvember 2021 hafi komið í ljós að kærandi hafi verið skráð í 15 ECTS-eininga nám við Háskóla Íslands og 60 ECTS-eininga nám við Landbúnaðarháskólann á haustmisseri 2021 samhliða því að þiggja greiðslu atvinnuleysistrygginga. Með erindi, dags. 23. nóvember 2022, hafi Vinnumálastofnun óskað eftir frekari upplýsingum frá kæranda vegna náms samhliða því að þiggja  greiðslu atvinnuleysisbóta. Athygli kæranda hafi verið vakin á að óheimilt væri að stunda nám umfram 12 einingar samhliða greiðslum atvinnuleysisbóta. Kæranda hafi verið bent á að ef það væri ósk hennar að kanna hvort hún uppfyllti skilyrði þess að stunda nám samhliða greiðslum atvinnuleysisbóta og möguleika á námssamningi þyrfti hún að senda inn skólavottorð með upplýsingum um nám og umfang þess. Þann 29. nóvember 2021 hafi fulltrúi Vinnumálastofnunar reynt að hafa samband við kæranda vegna samkeyrslu við námsskrá en símtalinu hafi ekki verið svarað.

Með erindi, dags. 6. desember 2022, hafi Vinnumálastofnun óskað eftir frekari upplýsingum frá kæranda vegna náms samhliða því að þiggja greiðslu atvinnuleysisbóta. Kærandi hafi verið upplýst um að við samkeyrslu Vinnumálastofnunar við nemendaskrá hafi komið í ljós að hún hafi stundað 15 ECTS-eininga nám í B við Háskóla Íslands sem væri fimm einingum umfram námssamning hennar við stofnunina. Auk þess hafi komið í ljós að kærandi hafi stundað 60 ECTS-eininga nám í C við Landbúnaðarháskóla Íslands á haustmisseri 2021 samhliða því að fá greiddar atvinnuleysisbætur, án þess að fyrir hafi legið námssamningur við stofnunina. Athygli kæranda hafi verið vakin á því að samkvæmt 1. mgr. 52. gr. laga um atvinnuleysistryggingar væru námsmenn ekki tryggðir á grundvelli laganna á sama tímabili og þeir stunduðu nám, enda væri námið ekki hluti vinnumarkaðsúrræða samkvæmt ákvörðun Vinnumálastofnunar. Samkvæmt námssamningi á milli kæranda og Vinnumálastofnunar hafi kærandi einungis verið skráð í 10 eininga nám. Óskað hafi verið eftir því að kærandi færði fram skólavottorð þar sem umfang náms væri tilgreint ásamt skýringum á því hvers vegna hún hafi ekki upplýst stofnunina um nám sitt.

Vinnumálastofnun hafi borist erindi frá kæranda þann 28. desember 2021. Þar hafi kærandi greint frá því að hún hafi talið að það væri í lagi að bæta við fimm einingum í Háskóla Íslands þar sem það hafi ekki farið yfir 20 eininga hámarkið. Þá hafi það verið ætlun hennar að greina frá fimm eininga námi umfram námssamning þegar hún myndi klára önnina. Hún hafi talið að greiðslur til sín á þeim tíma hefðu lækkað vegna umræddra aukaeininga. Hún vilji koma því á framfæri að hún hafi ekki náð áföngunum. Þá hafi kærandi greint frá því að hún hefði skráð sig í nám við Landbúnaðarháskólann en einungis væri um að ræða 16 eininga nám. Hún hafi skráð sig en hafi aldrei hafið námið. Henni hafi gengið erfiðlega að fá upplýsingar frá skólanum þar sem tölvupóstum hennar hafi ekki verið svarað og því hafi hún hvorki getað skilað skólavottorði né getað skráð sig úr náminu þegar hún hafi vitað að hún hafi ekki ætlað að stunda námið. Hún muni mögulega skrá sig í nám seinna sem passi með náminu í Háskóla Íslands til að fara ekki yfir 20 einingar. Með erindi kæranda hafi fylgt skólavottorð frá Háskóla Íslands, dags. 1. desember 2021, sem hafi staðfest að kærandi hafi verið skráð í 15 ECTS-eininga nám, auk skólavottorðs frá Landbúnaðarháskóla Íslands, dags. 9. desember 2021, þar sem staðfest hafi verið að kærandi hafi verið skráð í 16 ECTS-einingar en hún hafi ekki lokið neinum einingum.

Þann 3. janúar 2022 hafi Vinnumálastofnun fjallað um nám kæranda á haustmisseri 2021 samhliða því að fá greiddar atvinnuleysisbætur. Með erindi, dags. 5. janúar 2022, hafi kæranda verið tilkynnt að greiðslur atvinnuleysistrygginga til hennar hefðu verið stöðvaðar með vísan til 52. gr. laga um atvinnuleysistryggingar þar sem ekki lægi fyrir námssamningur við stofnunina. Kæranda hafi verið gert að endurgreiða ofgreiddar atvinnuleysisbætur.

Í kæru til nefndarinnar óski kærandi eftir því að krafa um endurgreiðslu verði felld niður þar sem um sé að ræða ranga skráningu. Haustið 2021 hafi hún hafið nám við Háskóla Íslands og hafi það verið ætlun hennar að vera í 10 ECTS-eininga námi þar sem það hefði ekki áhrif á bótarétt hennar. Þá hafi hún einnig skráð sig í hlutastarf. Kærandi hafi ákveðið að bæta við fimm ECTS-einingum til þess að vera áfram undir 20 eininga viðmiðinu og fá því áframhaldandi greiðslur atvinnuleysisbóta. Greiðslur til hennar hafi þá lækkað þar sem hún hafi farið yfir 12 eininga viðmiðið. Kærandi kveði það vera rétt að hún hafi skráð sig í nám við Landbúnaðarháskóla Íslands á haustmisseri 2021 en það sé hins vegar ekki rétt að hún hafi verið skráð í 26 ECTS-einingar. Hún hafi ætlað að halda sig undir 20 einingum en ekki ætlað að skrá sig í fullt nám þar sem hún hafi þurft á bótarétti sínum að halda. Þar að auki myndi hún ekki ráða við fullt nám í Landbúnaðarháskólanum og ljúka námi við Háskóla Íslands meðfram hlutastarfi. Kærandi hafi verið að skrá sig í nám í Landbúnaðarháskólanum í fyrsta sinn. Skólinn sé mjög ólíkur Háskóla Íslands og því hafi hún ekki haft þekkingu á hvernig hlutirnir virkuðu. Hún hafi sjálfkrafa verið skráð í fullt nám en ekki vitað hvenær frestur til að skrá sig úr áföngum væri liðinn. Fyrirspurnum hennar til skólans hafi ekki verið svarað og svo hafi frestur til að skrá sig úr námi verið liðinn. Hún hafi þó ekki getað lokið við neinar einingar vegna þessarar óreiðu af hálfu skólans, enda hafi hún haft nóg að gera fyrir utan námið. Samkvæmt staðfestingu frá Landbúnaðarháskóla Íslands hafi kærandi ekki lokið neinum áföngum sem sýni að mati kæranda að hún hafi ekki verið í náminu, þrátt fyrir að það hafi komið fram í samkeyrslu Vinnumálastofnunar við námsskrá. Þá sé það einnig ljóst samkvæmt skólavottorði að hún hafi eingöngu verið skráð í 16 ECTS-einingar en ekki 26 ECTS-einingar sem sýni enn fremur hversu mikið óskipulag hafi verið í skráningu skólans.

Lög nr. 54/2006 um atvinnuleysistryggingar gildi um atvinnuleysistryggingar launamanna og sjálfstætt starfandi einstaklinga á innlendum vinnumarkaði þegar þeir verða atvinnulausir, sbr. 1. gr. laganna. Mál þetta lúti að ákvörðun Vinnumálastofnunar um að stöðva greiðslu atvinnuleysistrygginga til kæranda þar sem hún hafi stundað nám á haustmisseri 2021 samhliða greiðslu atvinnuleysisbóta, án þess að fyrir hafi legið námssamningur við stofnunina.

Í 9. gr. laga um atvinnuleysistryggingar sé fjallað um umsókn um atvinnuleysisbætur. Samkvæmt 3. mgr. 9. gr. laga um atvinnuleysistryggingar beri atvinnuleitanda sem tryggður sé samkvæmt lögunum að upplýsa stofnunina um það sem kunni að hafa áhrif á rétt hans samkvæmt lögunum, svo sem upplýsingar um námsþátttöku. Ákvæðið sé svohljóðandi:

„Sá sem telst tryggður á grundvelli laga þessara skal upplýsa Vinnumálastofnun um allar breytingar sem kunna að verða á högum hans á þeim tíma er hann fær greiddar atvinnuleysisbætur eða sætir biðtíma eða viðurlögum samkvæmt lögum þessum eða annað það sem kann að hafa áhrif á rétt hans samkvæmt lögum þessum, svo sem um námsþátttöku, tekjur sem hann fær fyrir tilfallandi vinnu og hversu lengi vinnan stendur yfir.“

Í c. lið 3. gr. laga nr. 54/2006 um atvinnuleysistryggingar sé að finna eftirfarandi skilgreiningu á námi:

,,Samfellt nám, verklegt eða bóklegt, í viðurkenndri menntastofnun innan hins almenna menntakerfis á Íslandi sem stendur yfir í a.m.k. sex mánuði. Enn fremur er átt við nám á háskólastigi og það nám annað sem gerir sambærilegar kröfur til undirbúningsmenntunar og nám á háskólastigi. Einstök námskeið teljast ekki til náms.“

Í 52. gr. laga um atvinnuleysistryggingar sé kveðið á um þá meginreglu að námsmenn eigi ekki rétt á atvinnuleysisbótum samhliða námi. Í 1. mgr. 52. gr. segi orðrétt:

„Hver sá sem stundar nám, sbr. c-lið 3. gr., telst ekki tryggður samkvæmt lögum þessum á sama tímabili enda er námið ekki hluti vinnumarkaðsaðgerða samkvæmt ákvörðun Vinnumálastofnunar, sbr. þó 2., 3. og 4. mgr.“

Mælt sé fyrir um undanþágur frá meginreglunni í 2. til 5. mgr. 52. gr. Þar segi:

„Þrátt fyrir 1. mgr. er hinum tryggða heimilt að stunda nám á framhaldsskólastigi sem nemur að hámarki 12 einingum eða á háskólastigi sem nemur að hámarki 12 ECTS-einingum á námsönn enda sé um svo lágt námshlutfall að ræða að námið telst ekki lánshæft hjá Menntasjóði námsmanna. Hinn tryggði skal leggja fram staðfestingu frá viðkomandi menntastofnun um námshlutfallið.

Þrátt fyrir 1. og 2. mgr. er Vinnumálastofnun heimilt að meta þegar sérstaklega stendur á hvort sá er stundar nám á framhaldsskólastigi sem nemur allt að 20 einingum eða á háskólastigi sem nemur allt að 20 ECTS-einingum á námsönn uppfylli skilyrði laganna enda sé um svo lágt námshlutfall að ræða að námið telst ekki lánshæft hjá Menntasjóði námsmanna. Skilyrði er að námið kunni að nýtast hinum tryggða beint við atvinnuleit að mati ráðgjafa Vinnumálastofnunar og skal hinn tryggði leggja fram staðfestingu frá viðkomandi menntastofnun um námshlutfallið. Hinn tryggði á þá rétt til skertra atvinnuleysisbóta fyrir sama tímabil og skal Vinnumálastofnun meta skerðinguna á tryggingahlutfalli sem hann á rétt til skv. 15. eða 19. gr. í samræmi við umfang námsins.

Þrátt fyrir 1.–3. mgr. er hinum tryggða heimilt að stunda nám sem er skipulagt samhliða vinnu af viðkomandi menntastofnun og er ekki lánshæft til framfærslu hjá Menntasjóði námsmanna án þess að komi til skerðingar á rétti hans til atvinnuleysistrygginga, enda hindri námið hvorki virka atvinnuleit viðkomandi né möguleika hans til þátttöku á vinnumarkaði. Hinn tryggði skal leggja fram staðfestingu frá viðkomandi menntastofnun um skipulag námsins.

Þrátt fyrir 1.–4. mgr. skal hinum tryggða ávallt heimilt að ljúka þeirri önn sem er yfirstandandi við starfslok hans eða þegar hann missir starf sitt að hluta, sbr. 17. gr. án þess að komi til skerðingar á rétti hans til atvinnuleysistrygginga.“

Fyrir liggi að kærandi hafi gert námssamning við Vinnumálastofnun þann 8. september 2021 sem hafi heimilað henni að vera í 10 ECTS-eininga námi við Háskóla Íslands meðfram greiðslum atvinnuleysistrygginga. Samkvæmt fyrirliggjandi gögnum hafi kærandi stundað 15 ECTS-eininga nám við Háskóla Íslands og 16 ECTS-eininga nám við Landbúnaðarháskóla Íslands á sama tíma og hún hafi þegið greiðslur atvinnuleysistrygginga. Undanþága frá framangreindri meginreglu sem mælt sé fyrir um í 2. mgr. 52. gr. laganna eigi ekki við í máli kæranda, enda hafi hún stundað nám umfram 12 ECTS-eininga hámarkið sem tilgreint sé í undanþáguákvæðinu.

Undanþága 3. mgr. 52. gr. sé bundin við þau tilfelli þegar námshlutfall sé það lágt að námið teljist ekki lánshæft hjá Menntasjóði námsmanna. Þá sé það einnig skilyrði að námið kunni að nýtast beint við atvinnuleit að mati ráðgjafa Vinnumálastofnunar. Ef slík undanþága sé veitt séu atvinnuleysisbætur skertar í samræmi við umfang námsins. Þar sem kærandi hafi verið skráð í 31 ECTS-eininga nám á haustmisseri 2021 geti undanþáguákvæði 3. mgr. ekki átt við.

Þá sé nám kæranda ekki skipulagt samhliða vinnu, sbr. 4. mgr. 52. gr. laganna, og eigi sú undanþága því ekki við. Heimild 5. mgr. ákvæðisins um að atvinnuleitanda sé heimilt að ljúka þeirri önn sem sé yfirstandandi við starfslok hans eigi heldur ekki við, enda hafi kærandi síðast starfað í júlí 2020 og sótt um greiðslur atvinnuleysisbóta í febrúar 2021 að loknu fæðingarorlofi.

Í bráðabirgðaákvæði XVII með lögum um atvinnuleysistryggingar sé kveðið á um að þrátt fyrir 52. gr. laganna sé Vinnumálastofnun heimilt að gera sérstakan námssamning við atvinnuleitanda. Ákvæði 1. mgr. bráðabirgðaákvæðis XVII hljóði svo:

„Þrátt fyrir 52. gr. er Vinnumálastofnun heimilt að gera sérstakan námssamning við atvinnuleitanda sem telst tryggður innan atvinnuleysistryggingakerfisins. Vinnumálastofnun og viðkomandi atvinnuleitandi skulu undirrita samninginn. Með undirritun sinni skuldbindur viðkomandi atvinnuleitandi sig til að stunda nám sem hann hefur valið sér í samráði við ráðgjafa Vinnumálastofnunar og fellur undir átakið Nám er tækifæri, eftir að færni hans og staða hefur verið metin.“

Í 2. mgr. sé mælt fyrir um skilyrði fyrir samningi samkvæmt 1. mgr. Þar segi meðal annars:

a. að viðkomandi atvinnuleitandi hafi verið í virkri atvinnuleit og skráður án atvinnu hjá Vinnumálastofnun í a.m.k. sex mánuði áður en hann óskar eftir samningi skv. 1. mgr., b. að námið sé viðurkennt sem vinnumarkaðsúrræði, sbr. d-lið 1. mgr. 12. gr. laga um vinnumarkaðsaðgerðir, nr. 55/2006, sbr. einnig reglugerð um nám og námskeið sem eru viðurkennd sem vinnumarkaðsúrræði, og falli undir átakið Nám er tækifæri,

c. að námið kunni að nýtast viðkomandi atvinnuleitanda við atvinnuleit að námi loknu að mati ráðgjafa Vinnumálastofnunar,

d. að viðkomandi hafi ekki nýtt sér rétt sinn til námsláns hjá Menntasjóði námsmanna.

Undanþága samkvæmt bráðabirgðaákvæði XVII sé bundin við að atvinnuleitandi hafi gert námssamning við Vinnumálastofnun. Þar sem ekki liggi fyrir námssamningur umfram 10 ETCS-einingar séu skilyrði ákvæðisins ekki uppfyllt. Þar að auki falli nám kæranda ekki undir þær námsbrautir í háskólum sem falli undir átakið „Nám er tækifæri“ samkvæmt reglugerð nr. 919/2020.

Í ljósi alls framangreinds sé það afstaða Vinnumálastofnunar að meginregla 1. mgr. 52. gr. eigi við í máli kæranda. Kærandi hafi því ekki uppfyllt skilyrði þess að fá greiddar atvinnuleysisbætur á tímabilinu 1. september 2021 til 31. desember 2021. Í 39. gr. laga um atvinnuleysistryggingar sé fjallað um endurgreiðslu á ofgreiddum atvinnuleysisbótum. Í 2. mgr. 39. gr. segi orðrétt:

„Hafi hinn tryggði fengið hærri atvinnuleysisbætur skv. 32. eða 33. gr. en hann átti rétt á samkvæmt álagningu skattyfirvalda eða öðrum ástæðum ber honum að endurgreiða þá fjárhæð sem ofgreidd var að viðbættu 15% álagi. Hið sama gildir um atvinnuleysisbætur sem hinn tryggði hefur fengið greiddar fyrir tímabil er hann uppfyllti ekki skilyrði laganna. Fella skal niður álagið samkvæmt þessari málsgrein færi hinn tryggði rök fyrir því að honum verði ekki kennt um þá annmarka er leiddu til ákvörðunar Vinnumálastofnunar.“

Samkvæmt skýru orðalagi 2. mgr. 39. gr. beri að endurgreiða ofgreiddar atvinnuleysisbætur fyrir það tímabil sem atvinnuleitandi uppfylli ekki skilyrði laganna. Í athugasemdum með 39. gr. frumvarps þess er varð að lögum um atvinnuleysistryggingar sé sérstaklega áréttað að leiðrétting eigi við í öllum tilvikum sem kunni að valda því að atvinnuleitandi hafi fengið ofgreiddar atvinnuleysisbætur. Ástæða ofgreiðslunnar hafi með öðrum orðum ekki áhrif á skyldu viðkomandi til að endurgreiða þá fjárhæð. Ákvæði 2. mgr. 39. gr. sé því fortakslaust að því er varði skyldu til þess að endurgreiða ofgreiddar bætur.

Kæranda beri því að endurgreiða þær atvinnuleysisbætur sem hún hafi fengið greiddar fyrir tímabilið 1. september til 31. desember, samtals 507.334 kr., enda liggi fyrir að hún hafi ekki uppfyllt skilyrði laganna á umræddu tímabili, sbr. 1. mgr. 52. gr. laga um atvinnuleysistryggingar.

Heildarskuld kæranda nemi 583.446 kr., þar af sé álag að fjárhæð 76.101 kr. Eins og kveðið sé á um í lokamálslið 2. mgr. 39. gr. skuli fella niður álagið ef hinn tryggði færi rök fyrir því að honum verði ekki kennt um þá annmarka sem hafi leitt til skuldamyndunar. Í því samhengi vísi Vinnumálastofnun til þess að það sé á ábyrgð þess sem fái greiddar atvinnuleysisbætur að tryggja að Vinnumálastofnun berist nauðsynlegar upplýsingar sem geti haft áhrif á rétt hans til greiðslu atvinnuleysisbóta. Fyrir liggi að kærandi hafi ekki upplýst Vinnumálastofnun um nám sitt samhliða greiðslum atvinnuleysistrygginga umfram fyrirliggjandi námssamning vegna 10 ECTS-eininga náms við Háskóla Íslands. Þá hafi kærandi ekki óskað eftir námssamningi þess efnis á haustmisseri 2021. Í ljósi þess að rík skylda hvíli á umsækjendum um atvinnuleysisbætur til þátttöku í vinnumarkaðsaðgerðum og að tilkynna Vinnumálastofnun um allar þær breytingar sem verði á högum þeirra sé það mat Vinnumálastofnunar að skýringar þær sem kærandi hafi fært fram teljist ekki gildar í skilningi laga um atvinnuleysistryggingar. Með því að hafa ekki tilkynnt um nám sitt, skilað inn skólavottorði eða óskað eftir námssamningi við stofnunina hafi kærandi brugðist skyldum sínum. Þá bendi stofnunin jafnframt á að öllum atvinnuleitendum sé vísað á upplýsingar á vef stofnunarinnar um réttindi sín og skyldur á meðan þeir þiggi greiðslur atvinnuleysistrygginga. Þar sé meðal annars tiltekið að almennt sé ekki heimilt að stunda nám samhliða greiðslum atvinnuleysistrygginga en atvinnuleitendum kunni þó mögulega að standa til boða að gera námssamning við stofnunina. Með vísan til framangreinds beri kæranda að greiða umrædda skuld, auk álags, enda hafi kærandi að mati Vinnumálastofnunar ekki fært rök fyrir því að fella skuli niður álag.

IV.  Niðurstaða

Kærð er ákvörðun Vinnumálastofnunar um að stöðva greiðslur atvinnuleysisbóta til kæranda og að innheimta ofgreiddar bætur.

Í IX. kafla laga nr. 54/2006 um atvinnuleysistryggingar er fjallað um tilvik er leiða til takmörkunar á atvinnuleysistryggingum. Í 52. gr. laganna er fjallað um nám, en þar segir:

„Hver sá sem stundar nám, sbr. c-lið 3. gr., telst ekki tryggður samkvæmt lögum þessum á sama tímabili enda er námið ekki hluti vinnumarkaðsaðgerða samkvæmt ákvörðun Vinnumálastofnunar, sbr. þó 2., 3. og 4. mgr.

Þrátt fyrir 1. mgr. er hinum tryggða heimilt að stunda nám á framhaldsskólastigi sem nemur að hámarki 12 einingum eða á háskólastigi sem nemur að hámarki 12 ECTS-einingum á námsönn enda sé um svo lágt námshlutfall að ræða að námið telst ekki lánshæft hjá Menntasjóði námsmanna. Hinn tryggði skal leggja fram staðfestingu frá viðkomandi menntastofnun um námshlutfallið.

Þrátt fyrir 1. og 2. mgr. er Vinnumálastofnun heimilt að meta þegar sérstaklega stendur á hvort sá er stundar nám á framhaldsskólastigi sem nemur allt að 20 einingum eða á háskólastigi sem nemur allt að 20 ECTS-einingum á námsönn uppfylli skilyrði laganna enda sé um svo lágt námshlutfall að ræða að námið telst ekki lánshæft hjá Menntasjóði námsmanna. Skilyrði er að námið kunni að nýtast hinum tryggða beint við atvinnuleit að mati ráðgjafa Vinnumálastofnunar og skal hinn tryggði leggja fram staðfestingu frá viðkomandi menntastofnun um námshlutfallið. Hinn tryggði á þá rétt til skertra atvinnuleysisbóta fyrir sama tímabil og skal Vinnumálastofnun meta skerðinguna á tryggingahlutfalli sem hann á rétt til skv. 15. eða 19. gr. í samræmi við umfang námsins.

Þrátt fyrir 1.–3. mgr. er hinum tryggða heimilt að stunda nám sem er skipulagt samhliða vinnu af viðkomandi menntastofnun og er ekki lánshæft til framfærslu hjá Menntasjóði námsmanna án þess að komi til skerðingar á rétti hans til atvinnuleysistrygginga, enda hindri námið hvorki virka atvinnuleit viðkomandi né möguleika hans til þátttöku á vinnumarkaði. Hinn tryggði skal leggja fram staðfestingu frá viðkomandi menntastofnun um skipulag námsins.

Þrátt fyrir 1.–4. mgr. skal hinum tryggða ávallt heimilt að ljúka þeirri önn sem er yfirstandandi við starfslok hans eða þegar hann missir starf sitt að hluta, sbr. 17. gr., án þess að komi til skerðingar á rétti hans til atvinnuleysistrygginga.“

Í c. lið 3. gr. laganna er að finna skilgreiningu á námi samkvæmt lögunum, en þar segir:

„Nám: Samfellt nám, verklegt eða bóklegt, í viðurkenndri menntastofnun innan hins almenna menntakerfis á Íslandi sem stendur yfir í a.m.k. sex mánuði. Enn fremur er átt við nám á háskólastigi og það nám annað sem gerir sambærilegar kröfur til undirbúningsmenntunar og nám á háskólastigi. Einstök námskeið teljast ekki til náms.“

Í athugasemdum við ákvæði 52. gr. í frumvarpi því er varð að lögum um atvinnuleysistryggingar kemur fram að ekki séu lagðar til breytingar á þeirri meginreglu að námsmenn eigi ekki rétt á atvinnuleysisbótum. Miðað sé við að það skipti ekki máli hvort um sé að ræða dag- eða kvöldskóla eða fjarnám. Þá kemur fram að það kunni að vera að nám sé nauðsynlegur hluti af starfshæfingu atvinnuleitanda að mati ráðgjafa Vinnumálastofnunar, en í slíkum tilvikum geti atvinnuleitandi talist tryggður samhliða námi.

Um vinnumarkaðsúrræðið „Nám er tækifæri“ segir í bráðabirgðaákvæði XVII í lögum nr. 54/2006:

„Þrátt fyrir 52. gr. er Vinnumálastofnun heimilt að gera sérstakan námssamning við atvinnuleitanda sem telst tryggður innan atvinnuleysistryggingakerfisins. Vinnumálastofnun og viðkomandi atvinnuleitandi skulu undirrita samninginn. Með undirritun sinni skuldbindur viðkomandi atvinnuleitandi sig til að stunda nám sem hann hefur valið sér í samráði við ráðgjafa Vinnumálastofnunar og fellur undir átakið Nám er tækifæri, eftir að færni hans og staða hefur verið metin. Framangreindur samningur hefur ekki áhrif á rétt viðkomandi atvinnuleitanda til atvinnuleysistrygginga á grundvelli laganna.“

Þegar sótt er um atvinnuleysisbætur er umsækjandi spurður hvort hann sé skráður í nám á umsóknardegi. Upplýst er að almennt sé ekki heimilt að vera í námi samhliða greiðslu atvinnuleysisbóta. Þó séu undantekningar á þeirri meginreglu. Tekið er fram að það sé því mjög mikilvægt að hafa samband sem fyrst við ráðgjafa Vinnumálastofnunar til að kanna hvort viðkomandi eigi rétt á námssamningi.

Fyrir liggur að kærandi var skráð í 15 ECTS-eininga nám við Háskóla Íslands og 16 ECTS-eininga nám við Landbúnaðarháskóla Íslands samhliða því að fá greiddar atvinnuleysisbætur hjá Vinnumálastofnun á haustönn 2021. Samkvæmt gögnum málsins lá fyrir námssamningur á milli kæranda og Vinnumálastofnunar vegna 10 ECTS-eininga náms við Háskóla Íslands á haustönn 2021. Kærandi upplýsti Vinnumálastofnun ekki um nám umfram þær 10 ECTS-einingar sem námssamningurinn kvað á um. Kærandi hefur vísað til þess hún hafi ekki lokið neinum einingum við Landbúnaðarháskóla Íslands, þrátt fyrir að hafa verið skráð í 16 ECTS-einingar og hafi einungis lokið 15 ECTS-einingum við Háskóla Íslands. Þá hafi henni ekki tekist að skrá sig úr áföngum áður en frestur til þess rann út.

Ljóst er að meginregla 1. mgr. 52. gr. laga nr. 54/2006 átti við um kæranda, þ.e. hún stundaði nám í skilningi laganna. Úrskurðarnefndin bendir á að undanþáguheimildir 2. og 3. mgr. 52. gr. laga nr. 54/2006 eiga ekki við í máli kæranda þar sem hún var skráð í nám umfram 20 einingar. Þá er skilyrði bráðabirgðaákvæðis XVII laganna ekki uppfyllt í máli kæranda þar sem ekki lá fyrir námssamningur umfram 10 ECTS-einingar. Að því virtu uppfyllti kærandi ekki skilyrði þess að vera tryggð samkvæmt lögunum á þeim tíma sem hún var skráð í námið og átti því ekki rétt á greiðslum frá Vinnumálastofnun á tímabilinu 1. september 2021 til 31. desember 2021.

Í 2. mgr. 39. gr. laga nr. 54/2006 kemur fram að hafi hinn tryggði fengið hærri atvinnuleysisbætur samkvæmt 32. eða 33. gr. laganna en hann átti rétt á samkvæmt álagningu skattyfirvalda eða af öðrum ástæðum, beri honum að endurgreiða þá fjárhæð sem ofgreidd hafi verið, að viðbættu 15% álagi. Hið sama gildi um atvinnuleysisbætur sem hinn tryggði hafi fengið greiddar fyrir tímabil er hann uppfyllti ekki skilyrði laganna. Í sömu málsgrein segir einnig að fella skuli niður álagið samkvæmt málsgreininni færi hinn tryggði rök fyrir því að honum verði ekki kennt um þá annmarka er leitt hafi til ákvörðunar Vinnumálastofnunar. Í athugasemdum með frumvarpi því er varð að lögum nr. 54/2006 segir meðal annars svo í skýringum við ákvæðið:

„Efni ákvæðisins felur í sér möguleika á leiðréttingu á fjárhæð tekjutengdra atvinnuleysisbóta eftir að þær hafa verið keyrðar saman við álagningu skattyfirvalda að því er varðar það viðmiðunartímabil sem lagt er til að verði haft til hliðsjónar við útreikningana. Er því gert ráð fyrir að Vinnumálastofnun hafi heimildir til að leiðrétta fjárhæð atvinnuleysisbótanna til samræmis við álagningu skattyfirvalda. Er gert ráð fyrir að leiðréttingin geti átt sér stað nokkru eftir að bæturnar hafa verið greiddar eða þegar endanleg álagning skattyfirvalda liggur fyrir. Á sama hátt er jafnframt gert ráð fyrir að Vinnumálastofnun geti leiðrétt fjárhæð grunnatvinnuleysisbóta. Slíkt getur átt við þegar upplýsingar þær er liggja grunnatvinnuleysisbótum til grundvallar hafa verið rangar eða hinn tryggði ekki tilkynnt til Vinnumálastofnunar um að hann sé ekki lengur í atvinnuleit.

Þannig er gert ráð fyrir að hinn tryggði endurgreiði Atvinnuleysistryggingasjóði þær fjárhæðir sem ofgreiddar eru í þeim tilvikum er hann fékk hærri greiðslur úr sjóðnum en honum bar. Á þetta við um öll tilvik sem kunna að valda því að hinn tryggði hafi fengið ofgreitt úr Atvinnuleysistryggingasjóði.“

Samkvæmt framangreindu er ákvæði 2. mgr. 39. gr. laga nr. 54/2006 fortakslaust að því er varðar skyldu til þess að endurgreiða ofgreiddar bætur fyrir tímabil sem skilyrði laganna er ekki uppfyllt. Aftur á móti skal fella niður 15% álag færi hinn tryggði rök fyrir því að honum verði ekki kennt um þá annmarka er leitt hafi til ákvörðunar Vinnumálastofnunar. Þar sem kærandi tilkynnti Vinnumálastofnun ekki um nám sitt umfram þær 10 ECTS-einingar sem námssamningur kvað á um er það mat úrskurðarnefndarinnar að ekki sé tilefni til að fella niður álagið sem lagt var á endurgreiðslukröfuna. Með vísan til framangreinds er hin kærða ákvörðun staðfest.

Ú R S K U R Ð A R O R Ð

Ákvörðun Vinnumálastofnunar, dags. 5. janúar 2022, um að stöðva greiðslur atvinnuleysisbóta til A, og að innheimta ofgreiddar bætur, er staðfest.

F.h. úrskurðarnefndar velferðarmála

Hólmfríður Birna Guðmundsdóttir

 

 

 


Úrskurðir, ákvarðanir og aðrar úrlausnir sem birtast á vef Stjórnarráðsins eru á ábyrgð viðkomandi stjórnvalds. 
Stjórnarráðið ber ekki ábyrgð á efni frá sjálfstæðum stjórnvöldum umfram það sem leiðir af lögum.

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum